Trésmiðjan Akur ehf.

Trésmiðjan Akur ehf. Trésmiðjan Akur sérhæfir sig í allri almennri smíðavinnu sem og timbureiningahúsum.

AKURShús – íbúðarhús og frístundahús. Trésmiðjan Akur framleiðir timbureiningahús og afhendir óuppsett í einingum eða up...
09/12/2025

AKURShús – íbúðarhús og frístundahús.

Trésmiðjan Akur framleiðir timbureiningahús og afhendir óuppsett í einingum eða uppsett á byggingarstað. Allt eftir óskum hvers og eins.

Kynntu þér húsbæklinginn okkar á akur.is – Íslensk hönnun og framleiðsla.

Sendu okkur línu á [email protected] og fáðu verðáætlun í húsið þitt.

Frístundahús í BirkihlíðÞað hefur viðrað vel til byggingarvinnu síðustu daga og vikur og í byrjun þessarar viku hófu sta...
05/12/2025

Frístundahús í Birkihlíð

Það hefur viðrað vel til byggingarvinnu síðustu daga og vikur og í byrjun þessarar viku hófu starfsmenn Akurs reisningu á frístundahúsi í landi Kalastaða í Hvalfirði. Frístundasvæðið ber heitið Birkihlíð og er þetta fimmta húsið sem Akur reisir á þessu svæði.

Framkvæmdir hófust í byrjun október síðast liðinn. Þeir verktakar sem vinna að verkinu með Akri eru Borgarverk ehf. í Borgarnesi sem sér um jarðvinnu, Ávalt ehf. á Akranesi sá um undirstöður, Halldór Fannar Halldórsson pípulagningarmeistari á Akranesi sér um pípulagnir og Rafdreifing ehf. í Mosfellsbæ sér um raflagnir.

Húsið sem eru rúmir 60 fermetrar að stærð er hefðbundið að formi og er með risþaki og skyggni framan við stofu og eldhús, það er með litaðri timburklæðningu á útveggjum og eru gluggar og útihurðir með álklæðningu að utan.

09/10/2025

Akur byggir fyrir Sorpurðun Vesturlands

Í síðustu viku undirrituðu Trésmiðjan Akur og Sorpurðun Veturlands samnings þess efnis að Akur byggir nýtt starfsmanna- og þjónustuhús, sem verður sett upp í Fíflholtum á Mýrum. Nýja húsið verður sett á sama stað og núverandi þjónustuhús stendur, en það var sett niður til bráðabirgða árið 1999. Áætlað er að afhenda hið nýja hús í lok maí á næsta ári.

Fyrir nokkrum dögum kláruðu Akursmenn uppsetningu og frágang að utan á glæsilegu húsi sem staðsett er í Hegranesi í Skag...
27/05/2025

Fyrir nokkrum dögum kláruðu Akursmenn uppsetningu og frágang að utan á glæsilegu húsi sem staðsett er í Hegranesi í Skagafirði. Húsið er klætt að utan með standandi timburklæðningu og láréttri báruálklæðningu.

Samstarfsaðilar Akurs við framkvæmdina voru:

Nordan ísland ehf. Gylfaflöt 3 Reykjavík. Gluggar og útihurðir frá þeim eru úr timbri með álklæðningu að utan.

GSG Þaklagnir Smiðshöfða 19 Reykjavík. Á þaki er PVC þakdúkur sem GSG Þaklagnir sá um að setja niður og ganga frá.

Á næstu vikum mun Akur ljúka við frágang að innan fyrir kaupendur hússins.

Akurshús í Skagafjörðinn.Mánudaginn 5. maí s.l. var lagt af stað með timbureiningahús frá Akri. Húsið sem er hannað og t...
06/05/2025

Akurshús í Skagafjörðinn.

Mánudaginn 5. maí s.l. var lagt af stað með timbureiningahús frá Akri. Húsið sem er hannað og teiknað sérstaklega fyrir kaupendur er um 124 m2 að stærð á einni hæð og mun rísa í Hegranesi í Skagafirði. Bifreiðastöð ÞÞÞ á Akranesi sá um að flytja húseiningar og efni fyrir okkur á byggingarstað.

Nú eru vaskir menn frá Akri að reisa húsið sem mun á endanum verða skilað til eigenda tilbúnu undir tréverk síðar í sumar.

- Brot úr 65 ára sögu –Árið er 2008. Í byrjun ársins hófst smíði á sumarhúsi hér við verksmiðju Akurs. Húsið er rúmir 70...
15/01/2025

- Brot úr 65 ára sögu –
Árið er 2008. Í byrjun ársins hófst smíði á sumarhúsi hér við verksmiðju Akurs. Húsið er rúmir 70 m2 að grunnfleti, með svefnlofti yfir hluta hússins. Í júlí sama ár var húsið flutt á undirstöður í landi Barðastaða á Snæfellsnesi.

Flutningurinn gekk að óskum og sá Bifreiðastöð ÞÞÞ um hann. Skóflan á Akranesi sá um hífingu á húsinu.

Gleðileg jólStarfsfólk Trésmiðjunnar Akurs óskar viðskiptavinum sínum og samstarfsfólki gleðilegrar jólahátíðar og farsæ...
23/12/2024

Gleðileg jól

Starfsfólk Trésmiðjunnar Akurs óskar viðskiptavinum sínum og samstarfsfólki gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári. Þökkum ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.

Það verður lokað hjá okkur milli jóla og nýárs og fram í janúar. Opnum aftur mánudaginn 6. janúar.

- Brot úr 65 ára sögu –Árið er 2001. Í upphafi ársins var Trésmiðjan Akur fengin til að meta ástand turnsins á Akraneski...
22/12/2024

- Brot úr 65 ára sögu –
Árið er 2001. Í upphafi ársins var Trésmiðjan Akur fengin til að meta ástand turnsins á Akraneskirkju. Niðurstaðan var að endurbyggja þyrfti turninn frá grunni. Verkfræðistofan Hönnun á Akranesi var fengin til að gera byggingaruppdrætti og sjá um verkfræðilega hönnun. Turninn var byggður nákvæmlega eftir þeim gamla og kom Húsafriðunarnefnd ríkissins einnig að verkefninu. Smíði turnsins byrjaði á vormánuðum 2002 og lauk í júní sama ár. Smíðin fór fram innandyra á verkstæði Akurs og var turninn síðan fluttur og hífður á sinn stað af Skóflunni á Akranesi.

Einbýlishúsið við Akralund 30 á Akranesi er selt. Húsið er 196,5 m2 að stærð með innbyggðri bílgeymslu. Í húsinu eru fim...
12/12/2024

Einbýlishúsið við Akralund 30 á Akranesi er selt. Húsið er 196,5 m2 að stærð með innbyggðri bílgeymslu. Í húsinu eru fimm svefnherbergi og tvö baðherbergi. Stórt alrými er í húsinu með eldhúsi og stofu samliggjandi. Álklæðning er að utan og eru gluggar og útihurðir klædd með álklæðningu.

Eignin verður afhent nýjum eigendu á nýju ári og óskum við þeim innilega til hamingju.

Húsið er í húsbæklingi Akurs á heimasíðunni akur.is og er af gerðinni E 196-1. Þar er að finna nánari upplýsingar og útfærslur.

- Brot úr 65 ára sögu –Árið er 1965. Trésmiðjan Akur fékk það ár eitt stærsta verkefni sem það hefur unnið frá upphafi. ...
07/12/2024

- Brot úr 65 ára sögu –
Árið er 1965. Trésmiðjan Akur fékk það ár eitt stærsta verkefni sem það hefur unnið frá upphafi. En það var að smíða innréttingar og setja upp í 930 íbúðir í Breiðholti. Verkið var unnið fyrir Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar í Reykjavík.
Verkefnið stóð yfir í um 6 ár og á þeim tíma fjölgaði starfsfólki Akurs umtalsvert eða í um 20 starfsmenn.
Nokkri starfsmenn Trésmiðjunnar Akurs eru meðal fremstu manna á myndinni.

- Brot úr 65 ára sögu -Árið er 1987. “Einingahús flutt út til Grænlands” var fyrirsög á grein í Morgunblaðinu þann 23. a...
29/11/2024

- Brot úr 65 ára sögu -

Árið er 1987. “Einingahús flutt út til Grænlands” var fyrirsög á grein í Morgunblaðinu þann 23. apríl. Tilefni greinarinnar var að í marsmánuði voru húseiningar og efni í eitt Akurshús flutt til Grænlands.

Húsið var reist um sumarið í bænum Qaqortog. Umsjón með reisningunni hafði Þráinn Elías Gíslason, húsasmíðameistari hjá Akri á þeim tíma. Þráinn fór einn frá fyrirtækinu til Grænlands og hafði með sér til aðstoðar heimamenn.

65 ár frá stofnun Trésmiðjunnar Akurs20. nóvember 1959 var Trésmiðjan Akur stofnuð. Upphafið má þó rekja allt til 1955 e...
20/11/2024

65 ár frá stofnun Trésmiðjunnar Akurs

20. nóvember 1959 var Trésmiðjan Akur stofnuð. Upphafið má þó rekja allt til 1955 en frá þeim tíma ráku Stefán Teitsson einn af stofnendum Akurs og faðir hans Teitur Stefánsson trésmíðaverkstæði að Sóleyjargötu 6 á Akranesi.

Á heimasíðu fyrirtækisins má finna ágrip af sögunni fyrstu fimmtíu árin. Þar er að finna glærur eins og þessa sem fylgir hér.

Address

Akranes
300

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 17:00

Telephone

+3544306600

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Trésmiðjan Akur ehf. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Trésmiðjan Akur ehf.:

Share

Category