er Skrúðgarðyrkjufyrirtæki sem var stofnað árið 1990 og hefur annast alla almenna garðaþjónustu í liðlega 23 ár. Þó svo að fyrirtækið hafi verið stofnað 1990 hefur eigandi og stofnandi þess unnið við skrúðgarðyrkju í rúmlega 30 ár. Fyrirtækið er staðsett að Laufskálum II í Borgarbyggð en hefur þó teygt verkefnahring sinn um Suður og Norðurland. Aftur á móti hefur garðyrkja verið í forgangi á Lauf
skálum síðan árið 1945 þegar Aðalsteinn Símonarson frá Vatnskoti í Þingvallasveit og kona hanns Sigurbjörg Pálsdóttir stofna lögbýlið Laufskála byggja þar upp garðyrkjustöð og síðar trjáplöntu rækt. Staðurinn er einnig þekktur fyrir að hafa verið með stærstu framleiðslu og sölu á kaktusum og hitabeltisplöntum á Íslandi um árabil og á tímabili stærsta bananaræktun landsins.
Það er svo eftir 1970 sem Aðalseinn fer að fást við garðaþjónustu og ýmsa vinnu því tengdu út um allan Borgarfjörð. Á þessum árum plantaði Aðalsteinn út trjáplöntum víðsvegar um Borgarfjörðinn sem fjölskyldan á Laufskálum viðheldur enn. Kári Aðalsteinsson tekur svo við garðaþjónustunni 1984 og síðar garðyrkjustöðinni og rekur hana ásamt og garðaþjónustuna fram að árinu 1990 þegar Sindri Arnfjörð Sigurgarðarson starfsmaður hjá Kára tekur við garðaþjónustunni og stofnar fyrirtækið Sigur-garðar. Sigur- garðar kaupir síðan Gróðrarstöðinna Laufskálum 1997 og rekur hana til ársins 2003 er hann snýr sér að fullum krafti í skrúðgarðyrkjuna. Yfir þau 23 ár sem liðið hafa hefur fyrirtækið blómstrað og er að meðaltali með 4-6 starfsmenn auk eiganda yfir sumartímann. Frá árinu 1945 hafa þrjár kynslóðir fólks frá Laufskálum annast garðyrkjustörf þar og sú fjórða á leiðinni. Ef þú villt reynsluríkann garðyrkjumann í garðinn þá er Sigur-garðar sf. klárlega með þeim reynsluríkustu og sanngjörnustu í faginu.