01/01/2023
Gleðilega hátíð öll sömul og gleðilegt nýtt ár 🎆
Ég geng full af tilhlökkun inn í nýtt ár, enda 2022 búið að vera virkilega gott og lærdómsríkt ár, en mér finnst eins og þetta ár sem leið hafi verið lengi í bígerð.
Fyrir nokkrum árum sá ég sýningu eftir langalangaafa minn, Jón Stefánsson í Möðrudal, en sá merkismaður var dáinn áður en ég fæddist. Mögnuð sýning, bæði með listaverkum eftir hann og útskurð. Eitt tengdi ég rosalega við hann; þörfin fyrir að skapa, enda hefur það fylgt mér síðan ég man eftir mér. Man ég enn eftir þeirri sorgartilfinningu sem ég fann, stödd á þessari sýningu, því mér fannst ég væri ekki að skapa nóg. Sem var út í hött því ég var þá með tvö lítil börn, alltaf að baka, sauma og föndra með börnunum. Skapa líf í raun bara með þeim. En mig langaði að afreka meira og það ár, 2016, keypti ég mitt fyrsta vatnslitasett. Á hverju ári síðan hef ég lofað sjálfri mér að fá útrás fyrir þessari sköpunarorku sem ég finn fyrir. Jú ég nærist alveg við það að sjá um heimilið, börnin, köttinn, blómin, baka, skreyta, sauma, en ekkert jafnast á við sælutilfinninguna þegar mér tekst að mála fjöllin mín eða fjöllin handa ástvinum ykkar.
Hef ég óvænt fengið fyrirspurnir í gegnum árin um málverk, sem hefur ýtt mér til að mála og skapa meira en ég hefði trúað ég gæti.
2022 var stærsta árið mitt til þessa.
Ein spurning fékk mig til að mála margfalt meira en ég hafði gert öll seinustu ár.
Stofnaði ég þá i kjölfarið þessa síðu.
Málaði ég stærstu akrýl myndina mína til þessa sem og stærstu vatnslitamynd.
Í því tilefni fór ég smá út fyrir þægindaramman og hélt mína fyrstu sýningu, þökk sé góðu vinafólki og þakka ég kærlega öllum fyrir komuna.
Örfáum dögum eftir sýninguna fékk ég svo draum minn uppfylltan þegar ég fékk í hendurnar fullt vatnslitasett, með 135 litum.
Því má segja að ég hlakki rosa til 2023 því þá gefst tími til að prufa þessa liti.
Má segja að þessi sorgartilfinning yfir að ég sé ekki að skapa nóg sé löngu farin.
Megi þetta ár fara vel með okkur öll og vona ég að ég verði umkringd ástvinum og fjöllum sem oftast.
Takk kærlega fyrir það gamla, það hefur gefið mér meira en ykkur grunar ❤️