Varnir og Eftirlit

Varnir og Eftirlit AÞ-Þrif býður upp á meindýravarnir- og eftirlit fyrir fyrirtæki og stofnanir en sinnir einnig ýmis konar útköllum fyrir einstkalinga.

Meginverkefni okkar felast í starfrækslu meindýraeftirlits fyrirtækja og stofnana. Þannig sinna starfsmenn fyrirtækisins eftirliti og fyrirbyggjandi ráðstöfunum varðandi meindýravarnir. Ólafur Sigurðsson fer fyrir nýrri deild hjá AÞ-Þrif en hann hefur starfað við meindýravarnir- og eftirlit í rúm 20 ár og er að auki formaður Landssambands Meindýraeyða. Auknar kröfur um meindýravarnir og meindýraef

tirlit fyrir fyrirtæki og stofnanir hafa breytt starfsumhverfi meindýraeyða frá því að veiða og eyða meindýrum sem komast í hús eða vinnustaði í það að vakta varnarbúnað sem hluta af gæðakerfi fyrirtækja.

Við leitum að öflugum og skipulögðum einstaklingi í starf verkstjóra meindýraeyða. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt...
09/04/2025

Við leitum að öflugum og skipulögðum einstaklingi í starf verkstjóra meindýraeyða. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf þar sem þú berð ábyrgð á daglegri verkstýringu (5 manna teymi), skipulagi verkefna bæði á verkstöðum og á skrifstofu, ásamt því að sinna meindýraeyðingum og öðrum sérverkefnum.
Skoðaðu betur hér: https://alfred.is/starf/verkstjori-meindyraeftirlits

Á haustin breystist margt hjá meindýraeyðum. Sumarið er liðið og geitungar og kóngulær að mestu farin en þá koma mýsnar ...
26/10/2022

Á haustin breystist margt hjá meindýraeyðum. Sumarið er liðið og geitungar og kóngulær að mestu farin en þá koma mýsnar inn úr kuldanum. Ísland er eitt fjölbýlasta músasvæði heims og þegar næturfrostið byrjar leita þær inn í hús og byggingar til að komast inn í hlýjuna og þá er hringt vegna músagangs. Þá þarf að lána fólki eiturkassa til að setja út og setja upp allskyns gildrur inni.

Einnig gerist það að kuldinn færir kuldabrúna í útveggjum húsa innar í húsin og við það lifna gjarnan rakapöddur við eins og parketlús í nýbyggingum sem þá þarf að eitra fyrir.

Haustið er líka rólegi tíminn eftir eril sumarsins og þá gefst aukinn tími til að yfirfara og viðhalda búnaði hjá fyrirtækjum og stofnunum sem eru með reglulegt eftirlit að kröfu Heilbrigðiseftirlitsins.
Eitt er þó sem breytist ekki sama hvaða árstími er, en það eru eitranir í heimahúsum gegn silfurskottum og ýmsum bjöllum sem komast í lífræn efni og matvæli.

Address

Skeiðarás 12
Garðabær
210

Telephone

+3546950522

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Varnir og Eftirlit posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Varnir og Eftirlit:

Shortcuts

Share