12/03/2026
Góður dagur i dag. Fengum forvarnarverðlaun VÍS. Við erum stolt af okkar fólki.
Forvarnaverðlaun VÍS 2026 voru afhent fyrr í dag á Forvarnaráðstefnu VÍS. Verðlaunin eru veitt þeim fyrirtækjum sem hafa skarað fram úr með framúrskarandi og markvissu forvarnastarfi og sýnt með skýrum hætti fram á árangur í forvörnum. Í ár voru það Loftorka Reykjavík ehf. í flokki fyrirtækja með færri en 100 starfsmenn sem hlaut verðlaunin.
Loftorka Reykjavík leggur mikla áherslu á öryggismál en á hverjum verkstað bera verkstjórar ábyrgð á öryggismálum þar meðal annars með gerð og eftirfylgni áhættumata. Jafnframt eru daglegir morgunfundir þar sem farið er yfir helstu áskoranir dagsins.
Í stærri verkum er öryggisúttekt gerð mánaðarlega með fulltrúa úr öryggisnefnd, öryggisstjóra verksins, verkstjóra, undirverktaka, verkkaupa og eftirlitsaðila verksins. Í minni verkum annast verkfræðingur mánaðarlega öryggisúttekt. Forvarnastarf fyrirtækisins er til fyrirmyndar og hljóta þau Forvarnaverðlaun VÍS í flokki fyrirtækja með færri en 100 starfsmenn.
Á mynd eru frá vinstri: Davíð Sævarsson, Guðný Helga Herbertsdóttir, Sigurjón Guðmundsson, Andrés Sigurðsson, Hjördís Jóna Gísladóttir, Sindri Andrésson, Kristín Anna Ingólfsdóttir, Eggert Már Stefánsson og Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir.
Til hamingju Loftorka Reykjavík ❣️