09/07/2026
Við vorum að ljúka við virkilega glæsileg svalahandrið við Lyngmóa1-3-5 á Akureyri, þar sem við áttum ánægjulegt samstarf við Trétak.
Fyrir valinu varð Art 65 svalahandriðakerfið sem tónar fullkomlega við húsið:
Reykt gler sem gefur nútímalegt og stílhreint útlit.
Lituð rönd í RAL 7016 (antrasítgrátt) sem felur svalagólfin og gefur heildarmyndinni fágað og lokað yfirbragð.
Við þökkum Trétak kærlega fyrir frábært samstarf og virkilega vel unnið verk! 🤝✨