Landnot ehf.

Landnot ehf. GPS-landmælingar - Hnitsetning - Heimildavinna - Landskipti - Merkjalýsingar - Deiliskipulög (lítilla svæða)

Landnot Geoform bjóða fjölbreytta og vandaða þjónustu í kringum GPS-mælingar landareigna, í dreifbýli jafnt sem þéttbýli...
20/04/2026

Landnot Geoform bjóða fjölbreytta og vandaða þjónustu í kringum GPS-mælingar landareigna, í dreifbýli jafnt sem þéttbýli.

Meðal GPS-mælingaverkefna má nefna:

Innmæling / útsetning á:
– vatnslögnum
– rafmagnslögnum
– girðingum
– öðrum innviðum

Útsetning
– lóða og landareigna
– landamerkja
– byggingarreita

Eru eignamörkin skýr?Við veitum vandaða ráðgjöf í GPS-hnitsetningum, merkjalýsingum og deiliskipulagi.Hægt er að hafa sa...
14/04/2026

Eru eignamörkin skýr?

Við veitum vandaða ráðgjöf í GPS-hnitsetningum, merkjalýsingum og deiliskipulagi.

Hægt er að hafa samband á [email protected] eða í síma 897 4625

Sérfræðingar Landnota Geoform tóku saman StoryMaps-kynningarskjal um hvernig gerð merkjalýsingar fer fram. Hér er stikla...
10/04/2026

Sérfræðingar Landnota Geoform tóku saman StoryMaps-kynningarskjal um hvernig gerð merkjalýsingar fer fram. Hér er stiklað á stóru um hlutverk merkjalýsandans, hlutverk landeigandans og hlutverk stjórnsýslu í þessu mikilvæga ferli.

Hægt er að skoða kynninguna á hlekknum hér:
(opnast í nýjum glugga)

Gerð merkjalýsinga og landskipti

08/04/2026

Starfsmaður verður til viðtals á vinnustofunni á Dynskálum 30 á Hellu fimmtudaginn 9.apríl kl. 10-15

08/04/2026

Starfsmaður verður til viðtals á vinnustofunni Dynskálum 30 á Hellu, fimmtudaginn 9.apríl frá kl. 10-15.

Hvað eru skipulagsgögn? ::: Skipulagsuppdráttur ::: Afmörkun skipulagssvæðisins, mörk verndar- og hættusvæða. Lóða- og l...
10/02/2026

Hvað eru skipulagsgögn?

::: Skipulagsuppdráttur :::
Afmörkun skipulagssvæðisins, mörk verndar- og hættusvæða. Lóða- og landamörk, vegi, stíga. Nýtingarhlutfal, byggingarreiti

::: Greinargerð :::
Skjal sem gerir grein fyrir forsendum og markmiðum deiliskipulags ásamt umhverfismati. Því fylgja skipulagsskilmálar.

::: Stafrænt skipulag :::
Samkvæmt skipulagslögum skal útbúa sérstök stafræn skipulagsgögn og skila til Skipulagsstofnunar sem setur þau inn í skipulagsvefsjá. Þar er hægt að skoða skilmála einstakra svæða á öllu landinu.

Hægt er að hafa samband varðandi deiliskipulagsþjónustu Landnota Geoform á www.landnot.is/deiliskipulag

Í febrúar 2024 tók gildi ný samræmd reglugerð um merki og mat fasteigna.Þar er kveðið á um að allir landeigendur skulu l...
10/02/2026

Í febrúar 2024 tók gildi ný samræmd reglugerð um merki og mat fasteigna.

Þar er kveðið á um að allir landeigendur skulu láta gera merkjalýsingu landeignar sinnar þegar:

a ) Skýra þarf afmörkun á landi sem nú þegar er til í þinglýsingarbók með hnitsetningu ytri marka landareignar.

b) Ný fasteign; lóð/land er stofnuð við uppskiptingu lands. (landskipti)

c) Land er sameinað við aðra eign. (samruni)

Þess vegna gerðum við kynningu sem fer í gegnum, skref fyrir skref, hvað merkjalýsing er og hvernig framkvæmd hennar er háttað.

Kynninguna má nálgast hér:
https://landnot.is/um-landskipti/

Frá og með 1.júní 2025 skal nýju deiliskipulagi skilað á stafrænu formi til Skipulagsstofnunar. Það er til að tryggja að...
03/02/2026

Frá og með 1.júní 2025 skal nýju deiliskipulagi skilað á stafrænu formi til Skipulagsstofnunar. Það er til að tryggja að gögn séu samræmd fyrir vefsjá.

Vantar þig aðstoð með stafrænu skipulagsgögnin?

Landslagsarkitektar Landnota GeoForm bjóða ráðgjöf, leiðsögn og gerð stafrænna skipulagsgagna fyrir arkitekta, byggingaraðila, sveitarfélög og aðra sem fást við mannvirkjagerð.

Hafið samband á [email protected]
www.landnot.is

Hvers vegna þarf deiliskipulag fyrir landið mitt? Deiliskipulag skal gera fyrir einstök svæði eða reiti þar sem stærri f...
27/01/2026

Hvers vegna þarf deiliskipulag fyrir landið mitt?

Deiliskipulag skal gera fyrir einstök svæði eða reiti þar sem stærri framkvæmdir eru fyrirhugaðar.

Vandað deiliskipulag tryggir að uppbygging svæðis byggi á heildrænni sýn og samverkandi lausnum m.t.t. innviða og aðgengis.

Sjá nánar reglugerð um framkvæmdarleyfi nr 772/2012

Hægt er að hafa samband varðandi deiliskipulagsþjónustu Landnota Geoform á www.landnot.is/deiliskipulag

Address

Suðurlandsvegur 1-3
Hella
850

Telephone

+3548974625

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Landnot ehf. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Landnot ehf.:

Share