Garðyrkjuráðgjöf og hönnun

Garðyrkjuráðgjöf og hönnun Ráðgjöf um plöntuval í görðum. Umhirða, trjáa- og runna. Öll almenn garðyrkjuráðgjöf sbr. trjáklippingar, ráðgjöf, innkaup, ræktun garða og sumarhúsalóða.

Ráðgjöf með tré-, runna- og blómarækt. Uppbyggingu og viðhald garða. Þjónusta garðverkin hvort sem er vetur, sumar, vor eða haust.

09/01/2019

Nú er rétti tíminn til þess að spá og spekúlera í hvernig þú vilt að garðurinn þinn verði. Kíktu í bækur, farðu á netið og skrifaðu niður eða teiknaðu á blað hvernig þig langar að hafa garðinn þinn 🙂 Þegar gróðrastöðvarnar opna svo í vor þá ertu með einhverjar hugmyndir um hvaða plöntur þú vilt hafa í garðinum, hvað er í boði og hvað myndi henta þér 🙂

Ég mæli ekki með haustklippingum á trjám og runnum.  Ástæðuna má lesa í greininni hér fyrir neðan.
01/09/2016

Ég mæli ekki með haustklippingum á trjám og runnum. Ástæðuna má lesa í greininni hér fyrir neðan.

Þrátt fyrir veðurblíðu á köflum þá er nú ekki hægt að neita því að það er smávegis haust í lofti. Á þessum tíma árs fer oft að bera á auglýsinum um haustklippingar frá ýmsum garðyrkjufyrirtækjum. Við viljum í því sambandi benda á það að haustin eru ekki æskilegur tími til að klippa tré og runna.
Á haustin er veður oft vott og mikill raki í lofti. Einnig eru ýmiskonar pestir og sjúkdómar búnir að ná sér á strik yfir sumarið og grassera nú þegar gróðurinn undrbýr sig fyrir vetrardvalann. Trjágróður er best undir það búinn að loka sárum og verjast kvillum þegar hann er í fullum vexti því þá er varnarkerfi hans öflugt. Á haustin fer öll orka í að undirbúa sig fyrir veturinn en ekki í varnarkerfið. Tréð getur því hvorki lokað sárinu né varist þeim sjúkdómum og kvillum sem geta fundið sér leið að trjánum í gegnum opin sár.
Verum á varðbergi og hugsum vel um gróðurinn ;)

23/08/2016

Margir hafa spurt mig um klippingar á haustin á runnum og trjám. Ég hef ekki mælt með því. Ef klippt er áður en plönturnar hafa náð að klára sig fyrir veturinn þá er getur sveppur eða annað leiðindavandamál farið inn í plönturnar áður en þær loka sárinu fyrir veturinn. Bíðum með klippingar fram á næsta vor. Sumir spyrja mig: ´Hvað er næsta vor?' Ég segi yfirleitt mars-apríl. Það er ein planta sem er mjög algeng í íslenskum görðum sem á EKKI að klippa næsta vor og það er birkikvistur. Hann myndar blómbrum árið áður svo að ef þið viljið að hann blómstri næsta sumar að þá á að bíða með að klippa hann þangað til hann er búinn að blómstra (ekki bíða lengi).

23/08/2016

Eflaust eru margir komnir í ´haustfíling´ eftir frábært sumar og eru hættir að spá í að slá blettinn sinn eða reyta arfann. Reyndar er núna alveg tilvalið að gróðursetja plöntur eins og tré og runna. Orkan er minni í krónunni núna. Enn rótin í plöntunni er full af lífi og fær núna alla orkuna sem hún þarf til þess að vaxa. Reyndar fer rótin ekki í dvala eins og krónan yfir veturinn. Haustgróðursetning er reyndar tilvalinn tíminn. Minni hætta á þurrki vegna haustrigninga og rótin fær alla sína orku sem hún þarf frá plöntunni :)

10/06/2016

Ef þið eruð að skipuleggja garðinn ykkar þá endilega notið síður á netinu sem geta veitt ykkur upplýsingar um hvaða plöntur þið eigið að nota miðað við t.d. skugga, sól, norður eða suður. Flestar gróðrastöðvar eru að selja þessar plöntur sem henta fyrir íslenskar aðstæður. Garðplönturframleiðendur á Íslandi eru með heimasíðu sem er gardplontur.is

20/05/2016

Mig langar að benda fólki á sérstaklega hérna hérna á suðvesturhorni landsins að vera duglegt að vökva garðanna sína og plöntur sem það er með pottum. Veðrið undanfarna daga hefur bæði verið þurrt og kalt. Plönturnar hreinlega þrá góða vökvun. Þær laufgast fyrr og grasið verður miklu grænna ef þið vökvið vel. Best er að vökva annað hvort snemma á morgnanna eða á kvöldin. Það er bara allt að þorna út af þurrki og köldum vindi. Síðan má fara að gefa þeim góðan áburð eins og t.d. blákorn.

04/05/2016
Ég mæli með því að þið lesið þennan pistil.  Það skiptir sköpum að fá faglærða aðila sem vita hvað þeir eiga að gera til...
02/05/2016

Ég mæli með því að þið lesið þennan pistil. Það skiptir sköpum að fá faglærða aðila sem vita hvað þeir eiga að gera til þess að koma í veg fyrir ´skemmdaverk´ að mínu mati.

26/04/2016

Á sumum stöðum er byrjað að selja sumarblóm. Þó að sólin hafi leikið við okkur á suðvesturhorninu þá er ennþá of kalt á næturnar fyrir blessuð sumarblómin. Í byrjun maí verða flestar gróðrastöðvar búnar að opna fyrir sölu. Notum bara tímann þangað til t.d. að sópa, hreinsa laufblöð, finna til potta sem við viljum hafa úti, ákveða hvaða liti af sumarblómum og hvernig sumarblóm við viljum hafa :)

26/04/2016

Ykkur eflaust farið að klæja í puttanna að fara vinna í garðinum. Það er margt sem hægt er að gera til þess að undirbúa sumarið í garðinum. Endilega klippið öll limgerði. Mosahreinsið grasið t.d. með mosatætara (sem hægt er að fá leigt) eða bara rakið grasið með hrífu og rífið þannig upp mosann. Síðan er gott að bera áburð á grasið t.d. blákorn eða graskorn, ekki of mikið samt. Frekar að bera aftur seinna t.d. í lok maí. Hreinsa lauf úr beðum og raka létt yfir með hrífu þannig að loftið leiki vel um moldina og ef þið eruð með plöntur í beðum að þá má líka alveg bera smá blákorn á þau. Ef þið viljið lífrænan áburð frekar en tilbúinn að þá er líka hægt að nota moltu (ekki of mikið samt).

01/04/2016

Ég mæli með þessari gróðrastöð. Þar er fjölbreytt úrval af sumarblómum trjám og runnum ásamt faglegri ráðgjöf og þjónustu. Hún er staðsett við Dalveg 30 í Kópavogi.

https://www.facebook.com/Gr%C3%B3%C3%B0rarst%C3%B6%C3%B0in-Stor%C3%B0-141808855853103/?fref=ts

Í gróðrarstöðinni fást margar tegundir af trjám og runnum, fjölærar plöntur, sumarblóm, grænmeti og margt fleira. Við ræktum nær allar okkar plöntur sjálf = íslensk framleiðsla http://www.stord.is Verið velkomin

Address

Kópavogur
200

Telephone

8674174

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Garðyrkjuráðgjöf og hönnun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Garðyrkjuráðgjöf og hönnun:

Featured

Share