17/01/2025
Já það er greinilegt að fleiri en ég verða varir við aukningu á Bedbugs. Áhugavert innskot hjá Smára Meindýraeyðir í fréttunum. Þar kemur hann einmitt inn á að mikið af eitri sem er verið að nota í slagnum við þetta kvikindi virka ekki og það er sannalega rétt. Ég notaði 4 efni um daginn á þessa óværu en ég hafið tækifæri til að taka prufu á þeim efnum sem ég hef notað. Það kom mér svo sem ekki á óvart en 1 efnið var svo til alveg gagnslaust en 1 efnið fór upp í að drepa 70%. En það verður að taka fram að ég úðaði yfir fötur þannig að efnið fór beint á dýrin. Einnig kom hann inn á að hægt væri að gera meira ógagn en gagn ef farið væri í aðgerðir án þess að vita nákvæmlega við hvað er að eiga og það er svo sannalega satt. Það eina sem ég var ekki sammála var að bitin væru í línu 3-4 minnir mig að hann hafi sagt og jú það kemur fyrir en ég tel að það sé þá eftir fleiri dýr en 1 sem hefur náð sér í skammt úr viðkomandi. Ég setti 1 á mig til að prufa og hún labbaði á mér í nokkrar sekúndur og svo stoppaði hún og dundaði sér við að sjúga skammtin úr mér. Það tók hana nærri 9 mínútur áður en hún roggaði af stað og yfirgaf matsölustaðinn. Ég tek fram að ég ætla helst ekki að endurtaka þessa tilraun því að þó ég hafi ekki fundið fyrir því á meðan hún (þetta var kvenndýr) var að fylla á tankinn þá fann ég sannalega fyrir því daginn eftir í formi kláða og bólgu. Nú og þar sem ég var alltaf fiktandi í þessu þá náttúrulega endaði ég með gott sár á hendinni sem var þó nokkurn tíma að gróa. Það er sannalega rétt að þetta er sá gestur sem maður vill alls ekki fá í heimsókn en það lagast sannalega ekki við að gera ekki neitt.