Carbfix

Directions Website

Carbfix Carbfix captures CO2 and turns it into stone underground in less than two years.

Our mission is to significantly contribute to climate recovery through the worldwide scaling of underground CO₂ mineral storage.

Í þessari viku hlaut Carbfix viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar fyrir jafna kynjaskiptingu í efsta lagi stjórnunar. Við e...
16/10/2026

Í þessari viku hlaut Carbfix viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar fyrir jafna kynjaskiptingu í efsta lagi stjórnunar.

Við erum stolt af þessum áfanga, en enn stoltari af menningunni sem liggur að baki. Sterk fyrirtæki verða til þegar ólík sjónarmið fá að njóta sín og þegar hæfileikaríkt fólk fær svigrúm til að vaxa í starfi.

Framfarir gerast ekki af sjálfu sér. Þær verða til vegna fólks sem leiðbeinir, hvetur, styður og ögrar okkur til að ná árangri.

Þökkum Jafnvægisvogin - Hreyfiaflsverkefni FKA fyrir að standa að þessu mikilvæga verkefni.

🔗 https://www.carbfix.is/newsmedia/carbfix-hlytur-vi%C3%B0urkenningu-jafnv%C3%A6gisvogarinnar

Mynd tók: Einar Örn Jónsson

Jafnvægisvogin - Hreyfiaflsverkefni FKA Orkuveitan

Hvernig getum við dregið úr losun frá íslenskri stóriðju?Þeirri spurningu er nú verið að leita svara við með umfangsmiki...
16/10/2026

Hvernig getum við dregið úr losun frá íslenskri stóriðju?

Þeirri spurningu er nú verið að leita svara við með umfangsmikilli rannsóknarborun á Grundartanga sem er hluti af verkefninu Decarbonizing Grundartangi.

Áður en hægt er að taka ákvarðanir um mögulega uppbyggingu kolefnisföngunar og varanlegrar CO₂-bindingar þarf að skilja jarðfræðina undir svæðinu. Nú er því unnið að því að afla lykilgagna sem varpa ljósi á hvort berglögin á Grundartanga henti til slíkrar uppbyggingar.

Rannsóknin er mikilvægt fyrsta skref í að kanna hvernig hægt væri að draga úr losun frá einum stærsta iðnaðarklasa Íslands. Takist vel til gæti verkefnið lagt grunn að nýjum innviðum fyrir kolefnisföngun og bindingu sem styðja við kolefnislækkun í iðnaði, efla samkeppnishæfni svæðisins og falla að markmiðum Atvinnustefnu fyrir Ísland um sjálfbæra verðmætasköpun og aukinn útflutning.

Verkefnið hlaut 198,7 milljóna króna styrk úr Loftslags- og orkusjóði og er unnið í samstarfi Carbfix, Elkem Ísland, Norðuráls, Þróunarfélags Grundartanga og ÍSOR.

Í þessu innslagi frá RÚV Landanum fáum við innsýn í rannsóknarvinnuna sem nú stendur yfir á Grundartanga og þau mikilvægu vísindalegu gögn sem verið er að afla til að styðja við næstu skref verkefnisins.

🎥 Myndband: RÚV/ Landinn - frétta- og þjóðlífsþáttur

Árlega losa verksmiðjur á Grundartanga í kringum 800.000 tonn af koltvíoxíði. Nú standa yfir tilraunir hvort hægt sé að fanga stóran hluta þess og hindra að það fari út í andrúmsloftið.

14/10/2026

Rannsóknarborun Carbfix sem nú stendur yfir á Grundartanga er mikilvægur áfangi í verkefninu Decarbonizing Grundartangi, sem miðar að því að kanna möguleika á varanlegri bindingu koltvísýrings frá íslenskri stóriðju.

Markmiðið er að afla þeirra jarðfræðilegu gagna sem þarf til að meta hvort hægt verði að byggja upp innviði fyrir kolefnisföngun og bindingu á Grundartanga í framtíðinni. Slík uppbygging gæti skapað ný tækifæri til að draga úr losun frá íslenskum iðnaði, efla samkeppnishæfni svæðisins og er í takt við markmið atvinnustefnu stjórnvalda um kröftugan vöxt útflutnings sem byggir á atvinnugreinum með mikla framleiðni.

Verkefnið hlaut 198,7 milljóna króna styrk úr Loftslags- og orkusjóði og er unnið í samstarfi við Elkem Ísland, Þróunarfélag Grundartanga og Norðurál.

Í þessu innslagi frá RÚV Landanum fáum við innsýn í rannsóknarvinnuna sem nú er í fullum gangi á Grundartanga og fólkið sem leiðir verkefnið áfram.

Landinn Elkem Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Nánar um verkefnið hér: https://www.carbfix.is/newsmedia/carbfix-og-elkem

Það var okkur heiður að eiga gott samtal við Johan Rockström og Planetary Guardians um loftslagsaðgerðir og hlutverk tæk...
13/10/2026

Það var okkur heiður að eiga gott samtal við Johan Rockström og Planetary Guardians um loftslagsaðgerðir og hlutverk tæknilausna í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.

Í samtalinu ræddum við meðal annars að minnkun og stöðvun brennslu jarðefnaeldsneytis sé áfram eitt mikilvægasta verkefni samtímans til að draga úr frekari hlýnun Jarðar. Einnig var fjallað um þá losun sem erfitt er að koma í veg fyrir, til dæmis frá iðnaði á borð við álframleiðslu, og hvernig föngun og varanleg binding koltvísýrings getur gegnt hlutverki við að ná loftslagsmarkmiðum heimsins.

Þar getur tækni á borð við Carbfix-aðferðina, sem breytir CO₂ í steindir á öruggan og varanlegan hátt, verið hluti af lausninni.

Edda Sif Pind Aradottir Bergur Sigfússon Kári Helgason

Fyrsta skrefið að minni losun frá stóriðju á Íslandi felst í að afla réttu gagnanna.Í Landanum á RÚV var fjallað um rann...
13/10/2026

Fyrsta skrefið að minni losun frá stóriðju á Íslandi felst í að afla réttu gagnanna.

Í Landanum á RÚV var fjallað um rannsóknarborunina á Grundartanga, sem er hluti af verkefninu Decarbonizing Grundartangi. Verkefnið hlaut á þessu ári 198,7 milljóna króna styrk úr Loftslags- og orkusjóði og miðar að því að afla þeirra jarðfræðilegu gagna sem þarf til að meta hvort svæðið henti fyrir varanlega bindingu koltvísýrings í framtíðinni. Það eru Elkem á Íslandi, Norðurál og Þróunarfélag Grundartanga sem vinna að þessari rannsóknarborun.

Í innslaginu hitta áhorfendur meðal annars Salka Kolbeinsdóttir, Gunnar Hrafn Gunnarsson og Ólaf Elínarson sem leiða okkur í gegnum verkefnið úti á framkvæmdasvæðinu og útskýra hvernig rannsóknarborunin getur hjálpað til við að svara mikilvægum spurningum um bindingu kolefnis í berglögunum á iðnaðarsvæðinu á Grundartanga.

Við mælum með innslaginu fyrir alla sem vilja kynnast verkefninu og þeirri vinnu sem nú stendur yfir á Grundartanga.

Hægt er að horfa á innslagið hér á RÚV
https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/landinn/38534/bffkj3

Í síðustu viku fengum við hjá Carbfix góða heimsókn frá fulltrúum frá norska orkumálaráðuneytinu, Kanada, Liechtenstein,...
12/10/2026

Í síðustu viku fengum við hjá Carbfix góða heimsókn frá fulltrúum frá norska orkumálaráðuneytinu, Kanada, Liechtenstein, EFTA og íslenskum stjórnvöldum á Hellisheiði, auk fulltrúa frá Evrópusambandinu.

Gestirnir komu til að kynna sér hvernig íslenskar loftslagslausnir eru þróaðar og innleiddar í stórum stíl. Meðal annars fengu þeir innsýn í hvernig koltvísýringur er bundinn varanlega í berg með Carbfix-aðferðinni og hvernig Silverstone verkefnið nýtir föngun og varanlega geymslu CO₂ frá Hellisheiðarvirkjun með allt að 99,6% skilvirkni.

Heimsóknin var skipulögð í samstarfi við Orka náttúrunnar, en auk heimsóknar á starfssvæði Carbfix kynntu gestir sér einnig nýsköpun og þróun sem byggir á jarðhita á Hellisheiðarsvæðinu, meðal annars hjá Climeworks og VAXA Technologies.

Það er ánægjulegt að finna þann vaxandi alþjóðlega áhuga sem er á loftslagslausnum í framkvæmd og eiga samtal við ólíka aðila um hvernig hægt sé að hraða uppbyggingu þeirra á komandi árum.

Nánar hér: https://www.carbfix.com/newsmedia/international-delegation-explores-climate-solution

Lausnir við loftslagsvandanum þurfa að byggja á vísindum.Johan Rockström, einn áhrifamesti loftslagsvísindamaður samtíma...
08/10/2026

Lausnir við loftslagsvandanum þurfa að byggja á vísindum.

Johan Rockström, einn áhrifamesti loftslagsvísindamaður samtímans, verður með opið málþing á vegum Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands um ástand loftslags og náttúru og þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til að takast á við áskoranir okkar tíma.

Við mælum með þessum viðburði fyrir öll sem hafa áhuga á loftslagsmálum, vísindum og sjálfbærri framtíð.

Nánari upplýsingar: Skráning og dagskrá:
https://sshi.hi.is/is/opid-malthing-med-johan-rockstrom-astand-natturu-og-loftslags-hvar-stondum-vid-nu

Edda Sif Pind Aradóttir tók þátt í umræðum á málþinginu Áskoranir á norðurslóðum: Að bregðast við breyttum veruleika, þa...
08/10/2026

Edda Sif Pind Aradóttir tók þátt í umræðum á málþinginu Áskoranir á norðurslóðum: Að bregðast við breyttum veruleika, þar sem rætt var um hvernig ólíkar lausnir í loftslagsmálum geta unnið saman að sameiginlegu markmiði: að vernda lífríkið og draga úr áhrifum loftslagsbreytinga.

Loftslagsbreytingar eru ein stærsta ógnin sem náttúran og samfélög okkar standa frammi fyrir. Til að mæta þeirri áskorun þurfum við fjölbreytt verkfæri sem styðja hvert annað. Þar getur Carbfix-tæknin gegnt mikilvægu hlutverki með því að binda CO₂ varanlega í stein og leggja sitt af mörkum til nauðsynlegrar loftslagsaðgerðar.

Panelistar voru sammála um til að ná árangri þarf samstarfs, deila þekkingu milli vísinda, atvinnulífs, stjórnvalda og samfélagsins alls.

Við þökkum Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands sem stóð að viðburðinum í tengslum við Arctic Circle kærlega fyrir boðið og fyrir áhugaverðar og uppbyggilegar umræður um framtíð Norðurslóða og loftslagsaðgerða. 🌍💚

Ljósmyndari: Kristinn Ingvarsson.

Til hamingju, Orkuveitan, með Svansvottunina fyrir endurbæturnar á Vesturhúsi og Hvolfrými!  🦢Glæsilegur áfangi og gott ...
07/10/2026

Til hamingju, Orkuveitan, með Svansvottunina fyrir endurbæturnar á Vesturhúsi og Hvolfrými! 🦢
Glæsilegur áfangi og gott dæmi um metnað í umhverfismálum við framkvæmdir. Við óskum ykkur og öllum sem komu að verkefninu innilega til hamingju! Umhverfis- og orkustofnun

Það vantaði ekki kraftinn í HönnnunarÞing um helgina á Húsavík! ⚡️ Það var magnað að sjá og heyra af möguleikunum til up...
28/09/2026

Það vantaði ekki kraftinn í HönnnunarÞing um helgina á Húsavík! ⚡️ Það var magnað að sjá og heyra af möguleikunum til uppbyggingar á svæðinu, þeim verkefnum sem eru lengra komin í að hefja starfsemi og heyra frá fólki í fremstu röð þegar kemur að skapandi lausnum.

Við erum ákaflega þakklát að hafa boðið að vera með og fjalla um hvernig Carbfix getur verið hluti af lausninni þegar kemur að alvöru aðgerðum í loftslagsmálum.

Takk fyrir okkur Hraðið miðstöð nýsköpunar!

Address

Bæjarháls 1
Reykjavík
110

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Carbfix posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Sponsored

Share