Ákvæðisvinnustofa rafiðna

Ákvæðisvinnustofa rafiðna Ákvæðisvinnustofa rafiðna sér um ákvæðisgrundvöll rafiðna. Ákvæðisgrundvöllurinn er t?

21/09/2022

Breytingar verða á rekstri Ákvæðisvinnustofu rafiðna þar sem starfsmaður Rafmennt mun taka við daglegum rekstri stofunnar.

Því skal öllum fyrirspurnum beint að Ómari Rósenberg hjá Rafmennt, s.5400160 email: [email protected].

Sjálfur þakka ég öllum frábært samstarf og vona að Ómar eigi eftir að eiga í jafn góðu samstarfi við alla notendur og ég hef verið svo lánsamur að eiga.

Bestu kveðjur

Andri Reyr Haraldsson

05/05/2022

Vegna hagvaxtarauka í kjarasamningum hækkar ákvæðiseiningin í 731,13 kr. og gildir frá 1. apríl 2022.

15/02/2022

Fréttir
Einingarverð sveina breytist
1/28/22
Þar sem ekki var klárað að semja um einingaverð sveina fyrr en í gær þurfum við að uppfæra einingaverð sem gildir frá 01.01.2022.

Einingaverð sem tekur gildi 01.01.2022 verður 719,69

Þetta er sameiginleg niðurstaða, SART (SA) og RSÍ.

02/01/2022

Gleðilegt ár öll!

Athugið að í gær 01.01.2022 hækkaði einingaverð sveina og er nú 716,28.

Kv Andri Reyr Haraldsson

Ávæðisvinnustofa rafiðna

08/10/2021

Nú er verið að vinna við að endurnúmera ákvæðisvinnuvefinn.

Þetta gæti valdið notendum einhverjum vandræðum þar sem öll númer í grunninum verða færð í takt við 4.kafla (framkvæmdarsýslan).

En við hvertjum notendur til þess að nýta sér leitina ef það er eitthvað sem ekki finnst.

Einnig er sjálfsagt að hafa samband við starfsmann í s.8533383 eða á [email protected].

13/04/2021

Þá er kominn nýr flipi á vefinn þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um ákvæðisvinnu og samninga þar að lútandi, þó ekki kjarasamning sem slíkan enda er þá að finna hjá SART eða RSÍ.

Þarna munu bætast við þær upplýsingar sem gætu varðað ákvæðisvinnu í framtíðinni, einnig verða settar inn leiðbeiningar varðandi notkun á vefnum.

Alltaf eru einhverjar uppfærslur á vefnum og sú stærsta sem notendur munu verða varir við er endurnúmering á grunninum.

Þá verður notast við sambærileg númer og koma í grunnin frá framkvæmdarsýslu ríkisins (4.kafli). Því munu allir liðir innan Ákvæðisgrunnsins fá nýtt númer í samræmi við það. Við minnum notendur á að nota leitina á síðunni sér til einföldunnar.

Þessi vinna mun standa yfir í maí-júní.

Við hvetjum ykkur öll til þess að hafa samband ef það eru einhverjar ábendingar eða spurningar.

Andri Reyr Haraldsson

s.8533383

[email protected]

09/02/2021

Fréttir
Ýmislegt nýtt
2/9/21
Vefurinn er í stöðugri uppfærslu og viljum við hvetja sem flesta til þess að koma ábendingum varðandi það sem betur mætti fara á vefnum til [email protected] eða 8533383.

Ýmsar uppfærslur hafa verið gerðar á nýju síðunni og munu enn fleiri uppfærslur lýta dagsins ljós á næstu mánuðum varaðandi notkunarmöguleika.

Einnig er alltaf verið að bæta við liðum inn í grunninn og hér eru nokkur dæmi um það sem hefur komið inn í febrúar: Strengrennur úr áli, paratest og datamæling. Hurðapumpur, display, útvarp í rofadósir, snjallrofar og ýmislegt annað.

Hleðslustöðvar voru einnig settar inn en þar er einungis gerður greinamunur á 1 fasa eða 3 fasa, og mun það verða betur til skoðunar síðar.

Með tíð og tíma verður svo vonandi hægt að halda upp á opnun nýju síðunnar og verður það auðvitað gert með pompi og prakt þegar aðstæður leyfa.

Bestu kveðjur Andri Reyr Haraldsson starfsmaður Ákvæðisvinnustofu rafiðna

Ákvæðisvinnustofa rafiðna óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.Þetta ár hefur verið mjög sérstak...
27/12/2020

Ákvæðisvinnustofa rafiðna óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Þetta ár hefur verið mjög sérstakt og hefur það haft talsverð áhrif á starfsemi stofunnar.

Á tímum Covid hefur þó verið lögð meiri áhersla á þróun vefsíðu og öðru slíku.

Talsvert þarf að bæta í kynningarmál og heimsóknir til verktaka og rafvirkja og er það eitt af markmiðum næsta árs (með von um að það verði heimilt á næsta ári).

Einnig verður haldið áfram með vinnu við útfærslu á tilboðs/útboðsvef á ar.is og verður það verkefni kynnt betur síðar.

Hafið það gott yfir hátíðirnar.

Jólakveðja,

Ákvæðisvinnustofa rafiðna - Andri Reyr Haraldsson

Þá er ný heimasíða komin á laggirnar, endilega sendið skilboð ef upp koma einhver vandamál eða ábendingar um það sem má ...
02/07/2020

Þá er ný heimasíða komin á laggirnar, endilega sendið skilboð ef upp koma einhver vandamál eða ábendingar um það sem má bæta.

https://ar.is/

Address

Stórhöfði 27
Reykjavík
110

Telephone

+3548533383

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ákvæðisvinnustofa rafiðna posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Featured

Share

Category