Ég heiti Hörður Jónsson og hef gert við hljóðfæri síðan 2011 en fiktað í eigin hljóðfærum eins lengi og ég hef spilað.
Ég sérhæfi mig í að gera notaða gítara eins og nýja með þrifum og uppsetningu en einnig skipti ég um pickuppa eða aðra parta, laga rafkerfi, jafna bönd, smíða nut, líma einföld brot og aðrar viðgerðir. Uppsetning inniheldur þrif á öllum gítarnum, fingraborði jafnt og búk, yfirfe
rð á rafkerfi, strengjaskipti, innbyrðis stilling og háls stilling. Gítarinn er svo settur upp eftir kröfum eiganda.
Ég klára venjulegar uppsetningar á skömmum tíma, frá 2-5 dögum, en það fer algjörlega eftir því hversu mikið er að gera og hvert verkefnið er. Verðinu er stillt í hóf en í næstum ölum tilfellum þarf að líta á gripinn til þess að meta hvað það verður. Ég get þó gefið verðhugmynd í einkaskilaboðum í sumum tilfellum. Neyðarviðgerðir er mögulegar ef það þarf að ná einhverju fyrir tónleika eða upptökur tildæmis og er þá hægt að redda samdægurs eða á skömmum tíma. Aukalegt verð á slíkri greiðslu fer eftir hversu fljótt gripurinn þarf að vera tilbúinn.
Þaðer hægt að vera í sambandi í síma 6660781 nánast hvenær sem er til að finna tíma en einnig er gott að fá einkaskilaboð í gegnum Facebook. A.T.H - Ég er eins og er ekki í flóknari viðgerðum, eins og bandaskiptingum og að laga bindingu. Þegar ég hef annaðhvort ekki aðstöu, verkfæri eða kunnáttu til þess að gera það sem ég fæ til mín bendi ég á menn sem væru líklegir til að geta tekið það að sér.