Kappar

Kappar Kappar er verktakafyrirtæki í Reykjavík, með iðnaðarmenn á öllum sviðum. Kappar reka fullbúið trésmíðaverkstæði.

Sérsmíði, almennt viðhald fasteigna, glugga- og hurðasmíði, innréttingasmíði, klæðningar innréttinga, húsgagna o.fl.

09/01/2024
KappLAB innréttingar eru sérhannaðar fyrir heilbrigðisstofnanir á Íslandi með notagildi, hreinlæti og hagkvæmni í huga. ...
08/01/2024

KappLAB innréttingar eru sérhannaðar fyrir heilbrigðisstofnanir á Íslandi með notagildi, hreinlæti og hagkvæmni í huga.

Allar úthliðar og framhliðar á KappLAB innréttingum eru með HPL efni sem er bæði gríðarlega slitsterkt og er gerlafráhrindandi. Þessir eiginleikar efnisins gera það einstaklega hentugt
fyrir heilbrigðisstofnanir, til að mynda heilsugæslustöðvar, sjúkrahús, öldrunarheimili og
rannsóknarstofur. Þessu til viðbótar eru allir kantar á KappLAB innréttingum lokaðir með ABS laser-köntum sem eru bræddir á efnið og loka því sem best.

Öll mál KappLAB innréttinga miðast við innvolsi frá H+H System
sem sérhæfir sig í innvolvsi fyrir lyfja- og heilbrigðis stofnanir.
Einnig bjóðum við uppá sprautubox, geymsluhólf, hanskabox og fleiri sérlausnir.

KappLAB býður einnig upp á sérsniðin mál sé sérstaklega óskað eftir því og er slíkt þá unnið í samvinnu við
viðskiptavini hverju sinni.

KappLAB innréttingar eru hannaðar og smíðaðar á verkstæði Kappa ehf. sem staðsett er í Reykjavík.

Fjölgun hjá Köppum 😁 Ekki nóg með að við séum sífellt að fjölga starfsmönnum heldur eru okkar frábæru starfsmenn sífellt...
03/03/2021

Fjölgun hjá Köppum 😁

Ekki nóg með að við séum sífellt að fjölga starfsmönnum heldur eru okkar frábæru starfsmenn sífellt að fjölga sér! Vorum að lenda í þeim skemmtilegu aðstæðum í fyrsta skipti í sögu fyrirtækisins að kaupa óléttu-smíðabuxur þar sem Bergþóra okkar ber barn undir belti. Eins og sönnum Kappa sæmir slær hún hvergi af og fer mikinn á verkstæðinu, bara ögn gildari og jafnvel enn brosmildari en vanalega.
Bergþóra hefur verið hjá okkur á námssamningi undanfarin misseri sem lýkur von bráðar með sveinsprófi og fer hún þar í hóp fjölmargra ungra glæsilegra smiða sem hafa lært iðnina hjá okkur. Það er kannski til marks um hversu skemmtilegt það er á verkstæði Kappa að þau enda svo til öll á að vinna hjá okkur að sveinsprófi loknu og vonumst við svo sannarlega til að halda í Bergþóru.
Bergþóra starfar við smíðar á verkstæðinu hjá okkur í fríðum hópi karla og kvenna og erum við nokkuð vissir um að við séum eina smíðaverkstæði landsins sem getur státað af 50/50 kynjahlutfalli. Þykir okkur þetta sérstaklega skemmtilegt í ljósi þess að ekki eru nema rúm tíu ár síðan fyrirtækið var stofnað af einum smið aftan úr skottinu á gömlum Toyota HiAce. Nú rúmum tíu árum síðar eru Kappar eitt stærsta og tæknivæddasta verkstæði landsins og það er enn í eigu þessa sama smiðs sem líður best á verkstæðisgólfinu í smíðagallanum þó hann sé að reka nærri 50 manna fyrirtæki.
Nú bíðum við bara spennt eftir því að það fjölgi enn í Kappa-fjölskyldunni og horfum björt til framtíðar.

08/09/2020
Sérsmíðaður upphengdur skenkur - perfect sence svart matt
12/03/2020

Sérsmíðaður upphengdur skenkur - perfect sence svart matt

Sérsmíðaður skápur / skenkur - svart matt ásamt to***co halifax oak
08/03/2020

Sérsmíðaður skápur / skenkur - svart matt ásamt to***co halifax oak

Kom upp neyðartilvik ? Erum með vaktsímann 24/7 -  s: 860 – 3333
21/10/2019

Kom upp neyðartilvik ?
Erum með vaktsímann 24/7 - s: 860 – 3333

Kappar halda áfram að bæta við sig og auka þjónustuna við viðskiptavini sína.
Nýlega bættust í flotann tveir háþekju bílar, fullbúnir öllu því sem þarf til að takast á við hin ýmsu verkefni og tjón sem þú mögulega gætir lent í.
Kappar sinna neyðarvakt og annari neyðarþjónustu allan sólarhringinn, neyðarlokanir, glerskipti, leka- og vatnstjón ásamt brunatjónum svo eitthvað sé nefnt.
Hvort sem þú þarft smið, rafvirkja eða pípara.
Ef á þarf að halda, vegna tjóns, getum við tekið fyrirvaralaust við innbúi í geymslu í skamman tíma.

Kom upp neyðartilvik ?
Erum með vaktsímann 24/7 - s: 860 – 3333

Sérsmíði vök baðhús, innréttinga hluti
19/10/2019

Sérsmíði vök baðhús, innréttinga hluti

Address

Dragháls 12
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kappar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Featured

Share

Category