GM málun

GM málun Guðmundur Már er löggiltur húsamálari sem bíður uppá alhliða málningarþjónustu jafnt úti sem inni. Vönduð vinnubrögð. Vönduð vinnubrögð og góð þjónusta.

Gerum föst verðtilboð eða vinnum í tímavinnu, verðtilboð eru að kostnaðarlausu og án skuldbindinga fyrir verkkaupa. Öll okkar verk eru í ábyrgð. Vöktum fasteignir og metum viðhaldsþörf sé þess óskað. Vinnum aðeins með hágæða efnum sem viðurkennd eru við íslenskar aðstæður.

Undanfarin ár hefur verið hvað mest móðins að hafa heimili manna hvítmáluð.  En nú undanfarið er þetta að breytast, við ...
15/01/2014

Undanfarin ár hefur verið hvað mest móðins að hafa heimili manna hvítmáluð. En nú undanfarið er þetta að breytast, við höfum víða verið að mála vegg og vegg í einhverjum áberandi lit. Slíkt getur lífgað uppá rýmið og gert hlýlegra. Hér eru nokkur dæmi um nýleg verk í þessa átt. Við bætum litum í líf þitt. Hafðu samband. S:895-0573

06/01/2014

Að vanrækja viðhaldið getur verið dýrt. Við erum í góðu samstarfi við strákana í Afkast ehf sem eru sérfræðingar í múrviðgerðum. Saman höfum við ástandsskoðað hús, gert tilboð og unnið í sameiningu að endurbótum. Nú er rétti tíminn til að láta fagmenn meta viðhaldsþörf fasteignarinnar. Hafðu samband og við komum í sameiningu og metum húseign þína þér að kostnaðarlausu. GM málun. S:895-0573.

Kalkmálning er allt öðrum kostum gædd en hefðbundin Akrýl og plastmálning sem yfirleitt er notuð.  Að mála með kalkmálni...
03/01/2014

Kalkmálning er allt öðrum kostum gædd en hefðbundin Akrýl og plastmálning sem yfirleitt er notuð. Að mála með kalkmálningu er nokkuð flókið og erfitt ferli og einnig þarf sérþekkingu á meðferð hennar svo áferð og útlit verði eins og óskað er. Kalkmálning er borin á með þar til gerðum kústum, en ekki rúlluð á eins og hefðbundin málning. Fallegt getur verið að taka sérstaka hluta fasteigana eða bara einn vegg með kalkmálningu til að skapa skemmtilega og öðruvísi stemmingu. Hafðu samband og við ráðleggjum þér og gerum verðtilboð í kalkmálningu fyrir þig. S:895-0573

Mikið mæðir á veggjum í stigahúsum fjölbýlishúsa.  Mála þarf á fimm til tíu ára fresti ef vel á að vera.  Einnig er nauð...
03/01/2014

Mikið mæðir á veggjum í stigahúsum fjölbýlishúsa. Mála þarf á fimm til tíu ára fresti ef vel á að vera. Einnig er nauðsynlegt að velja slitsterka og þvottheldna málningu sem þolir slíkan umgang. Hafðu samband og við gerum tilboð í stigaganginn þinn þér að kostnaðarlausu. S:895-0573

Þegar flöturinn er ómálaður fyrir er nauðsynlegt að grunna fyrst svo að yfirmálningin fái viðloðun.  Grunnur gengur vel ...
03/01/2014

Þegar flöturinn er ómálaður fyrir er nauðsynlegt að grunna fyrst svo að yfirmálningin fái viðloðun. Grunnur gengur vel inní steininn og myndar vörn gegn upptöku vatns. Þetta hús var fyrst sílanborið. Monosílan veitir einnig vatnsvörn. Húsið var málað með Steinvara 2000 sem er terpentínuþynnt málning sem reynst hefur vel hérlendis til fjölda ára.

Gamalt veggfóður rifið af stofuveggjum í eldri íbúð.  Veggir síðan heilsparslaðir, grunnaðir og svo málaðir tvær umferði...
03/01/2014

Gamalt veggfóður rifið af stofuveggjum í eldri íbúð. Veggir síðan heilsparslaðir, grunnaðir og svo málaðir tvær umferðir. Heilspörtlun er nokkuð flókin aðgerð og krefst fagþekkingar ef vel á að vera. Hafðu samband og fáðu tilboð í sparslvinnuna hjá þér. S:895-0573

Address

Blönduhlíð 9
Reykjavík
105

Telephone

8950573

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when GM málun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to GM málun:

Featured

Share

Category