23/02/2026
Í Seljahverfi er gott að búa og margir möguleikar á að breyta og bæta.
Alltaf næg pláss til þess að útbúa auka bílastæði :).
Í byrjun sumars 2025 var óskað eftir því hvort við gætum tekið að okkur að útbúa c.a. 50m2 bílastæði í Flúðaselinu og notast við Ecorastic grindur. Auðvitað EKKERT MÁL.
Hver grind þekur 1m2 og því auðvelt að leggja þær þegar öll undirvinna er búin. Notast var við perlusteina til að fylla upp í grindurnar og svo þjappað létt yfir. Málmsmiðja Þorgríms sem er þjónustuaðili Ecorastic grindanna en Steypustöðin er með perlusteinana.
Fljót unnið verk og auðveld aðkoma. Ótrúlega skemmtileg lausn og endingargóð.
Ef þú hefur áhuga á að útbúa slíkt svæði þá eru einnig til margar útfærslur. Hafðu samband og við aðstoðum þig við valið og framkvæmdina.
Gsm 8951818 eða með vefpósti [email protected]