07/10/2025
Árlagnir leitar að pípulagningamanni eða einstaklingi með reynslu úr faginu til starfa á Selfossi. Við sinnum bæði nýlögnum og viðhaldsverkefnum fyrir heimili og fyrirtæki á Suðurlandi.
Við leitum að:
• Pípulagningamanni með sveinspróf (kostur en ekki skilyrði)
• Reynsla úr faginu og ökuréttindi nauðsynleg
• Sjálfstæðum og ábyrgum starfsmanni sem leggur metnað í góða þjónustu
Við bjóðum:
• Góð laun eftir hæfni og reynslu
• Vinnubíl og öll helstu verkfæri
• Fjölbreytt verkefni í skemmtilegu starfsumhverfi
Þú sækir um hér: https://arlagnir.is/atvinnuumsokn/