20/10/2026
Svansvottun á Tryggvagötu.
Föstudaginn 16. október s.l. kom Bergþóra Kvaran frá Svaninum færandi hendi með Svansvottun fyrir íbúðirnar við Tryggvagötu á Selfossi. Guðjón Þórisson, verkefnastjóri auk Gylfa Gíslasonar, framkvæmdastjóra og Sigrúnar Melax, Gæða-, öryggis-, og umhverisstjóra veittu vottuninni viðtöku.
Svansvottun felur í sér strangar kröfur um gæði, umhverfismál og innivist. Á byggingartíma eru framkvæmdar meðal annars rakamælingar og loftþéttleikaprófanir, auk þess sem öll byggingarefni þurfa að uppfylla kröfur Svansins um heilnæmi og umhverfisáhrif.
Við hönnun og uppbyggingu íbúðanna á Tryggvagötu var sérstök áhersla lögð á góða innivist, hljóð- og ljósvist, loftræsingu, orkunýtingu og endingargóð efni. Notkun steypu með lægra kolefnisspori gerði okkur jafnframt kleift að draga úr kolefnislosun vegna steypunnar um ríflega 30%.
Við erum afar stolt af þessu verkefni. Auk vandaðra íbúða hefur verið skapað fjölskylduvænt umhverfi þar sem grunnskóli, sundlaug, líkamsrækt, fjölbreytt þjónusta og nýji miðbær Selfoss er allt í göngufæri. Þarna er stæði í bílakjallara fyrir allar íbúðir, rúmgóðar geymslur og lyfta beint úr kjallara upp á allar hæðir.
Umhverfisviðurkenning. Fjölbýlishúsin við Tryggvagötu 10 og 12 hlutu viðurkenninguna „Fallegasta fjölbýlið“ frá Umhverfisnefnd Árborgar þar sem m.a. kom fram í umsögn dómnefndar: „Allur frágangur lóðar er til mikils sóma og lóðin skemmtileg og vel hirt svo eftir er tekið. Mikill metnaður var settur í að fella hús og lóð að nærliggjandi umhverfi.“
Árangur sem þessi byggir á góðu samstarfi Árborgar, ráðgjafa, undirverktaka og starfsfólks JÁVERK. Við þökkum öllum sem komu að verkefninu fyrir þeirra framlag.
Nánari upplýsingar um Svansvottaðar íbúðir má finna á heimasíðu JÁVERK.