04/04/2026
Hvað kostar baðið mitt?
Þetta er fyrsta spurningin sem flestir spyrja sig — og alveg rétt spurning.
Raunveruleikinn er að flest baðherbergi lenda einhvers staðar hér:
• Einföld uppfærsla: 1.5 – 2.5 m.kr
• Standard endurnýjun: 2.5 – 4.0 m.kr
• Boutique / heima spa vibe: 4.0 – 6.0+ m.kr
En verðið snýst ekki bara um flísar eða innréttingar.
Þú getur farið í flísar á 6.000 kr/m² eða 16.000 kr/m² —
en þar liggur ekki stóri kostnaðurinn.
Það sem raunverulega keyrir verðið er:
– Umfang breytinga
– Undirbúningur (niðurrif, jöfnun flata, uppbygging, vatnsvörn)
– Efnisval (já, en ekki aðalatriðið)
– Og útfærslan
Hlaðinn veggur? Brúsahilla? Innfeld lýsing? Skuggafúgur?
Þetta er það sem breytir öllu.
⸻
Það er líka ástæðan fyrir því að tilboð geta verið mjög misjöfn.
Sum tilboð líta lægri út — en innihalda einfaldlega minna.
Þess vegna:
Ekki biðja bara um “tilboð í baðherbergi”.
Ákveddu fyrst hvað þú vilt — og fáðu síðan fagmann til að setja raunhæfan kostnað á það.
Ef aðili getur ekki gefið þér ca sundurliðaða mynd af kostnaði…
þá myndi ég finna annan sem getur það.
Þú vilt ekki enda á:
“tilboð 1.500.000 kr”…
og svo borgar þú restina í aukaverkum.
⸻
“One stop shop” lausnir eru oft hærri í verði —
en þar ertu að kaupa:
yfirsýn
ábyrgð
og ró í ferlinu
⸻
Baðherbergi er ekki bara kostnaður.
Þetta er rými sem þú notar á hverjum degi —
og á að endast. Hvort sem það er hönnun, vinnubrögð eða efnisval.
⸻
Ef þú ert að velta þessu fyrir þér:
Sendu mér skilaboð og ég gef þér raunsætt mat á því hvað þitt bað gæti kostað. Og fylgt því eftir með föstu verði ef við tökum þetta skrefinu lengra.
mbk
Guðjón
773-0880
[email protected]